Þá er páskafríinu að ljúka.
Því miður eru margir sem gleyma hvers vegna við eigum frí
þessa daga, gleymum því hreinlega í hraða daglegs lífs. Ég reyni
að nota þessa daga í samveru með fjölskyldu og vinum og eins og
svo oft áður var gestkvæmt hjá okkur.
Helgi heldur því fram
að ég hafi verið hefðarfrú í fyrra lífi þar sem mér finnst
svo gaman að hafa marga í kringum mig, halda boð og finnst
lítið mál að bæta við fólki í mat með stuttum
fyrirvara. Ég held frekar að ég hafi
rekið athvarf eða félagsheimili 
Föstudagurinn langi var einn af leiðinlegustu dögum
ársins í minni æsku, það mátti hreinlega ekki gera neitt
skemmtilegt. Það var ekkert spennandi í útvarpi og sjónvarpi og það
mátti alls ekki fara í heimsókn til vina og ættingja. Í dag reyni
ég að gera eitthvað skemmtilegt fyrir mig og mína og í ár bauð ég
góðum vinum í sjávarréttasúpu með öllu tilheyrandi þ.e. hvítvíni,
brauði og heitum potti 

Á laugardaginn
litu þeir feðgar, Biggi og Samúel við og fengu sér smá kaffi og
páskaegg með okkur, alltaf gaman að fá vini úr Grundarfirði í
heimsókn. Kvöldinu var síðan varið í spil með Ingibjörgu og Gunnari
en börnin, ef börn skal kalla, voru óvenju mikið heima þessa
dagana. Þau nutu þess að vera heima með mömmu og pabba og hafa það
kósí eins og við köllum það 
Á páskadagsmorgun
vöknuðu systkynin óvenju snemma því þau vakna ekki klukkan níu á
sunnudögum nema tilneydd ! Það er alveg ótrúlegt hvað þau eru
vanaföst þessar elskur því það varð að fela páskaeggin og það varð
að vakna klukkan níu til að horfa á barnaefnið, sem þau reyndar
gleymdu að horfa á í ár þar sem þau voru svo lengi að leita að
páskaeggjunum. Það tók um 45 mín að finna síðasta eggið en alls
leituðu þau að sjö eggjum, já ég sagði sjö eggjum því við fengum
óvenju mörg egg þetta árið 
Ég var með
ellefu manns í mat á páskadag því fyrir utan það sem venjulega er í
mat hjá mér á tillidögum mættu heimalingurinn Dóra Lind, Helga
frænka og Eydís hans Gunna í mat 

Hafdís
systir og fjölskylda kom svo í heimsókn um kvöldið og sátum
fram á rauða nótt við að spila Partý og co, skemmtilegt spil
sem kom öllum til að hlægja og vel það. Mæli með spilakvöldi
þar sem Partý og co er spilað, ekki verra að hafa smá bjór og
popp með 

Á morgun verður
svo enn eitt boðið hér á Móabarðinu. Blíðfinnur bestaskinn á afmæli
á morgun svo hér verður opið hús með kaffi og tilheyrandi, að
sjálfsögðu er búið að baka Leyndarmál, nema hvað ? Leyndarmálið er
vinsæl kaka í móðurfjölskyldunni hans Helga og það eru aðeins þrjár
konur í fjölskyldunni sem geta bakað þessa köku því uppskriftin er
leyndarmál, jamm og þannig varð nafnið á kökunni til. Ég
var svo heppin að fá uppskriftina að gjöf á sínum tíma sem þíðir að
ég er ein ein þeirra kvenna sem geta bakað kökuna, hinar konurnar
eru tengdamamma og Helga frænka. Skemmtileg hefð sem gaman er að
varðveita
Kærleikskveðja,
Linda Ósk